Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Pælingar

  1. Nú hefur fjölskyldan ákveðið að bregða undir sig betri bomsunum og skella sér í sólina á Albir í upphafi sumars.  Það ætti að vera spennandi og er það og ekki hvað síst að nú förum við bara þrjú en restin er á víð og dreif á þessum tíma þannig að hver verður að sjá um sig sjálfur.  Smile 

Ódýr trygging.

Alveg er það nú með ólíkindum að ekki skuli vera meira um að fólk fjárfesti í eins ódýrum búnaði og reykskynjari og slökkvitæki eru. Reykjskynjari er sennilegast ódýrasta líftrygging sem völ er á og þó að settir væru skynjarar í öll herbergi þá er það ekki mikill kosnaður sér í lagi ef miðað er við annað sem fjárfest er í.  Þó ég sé ekki höfuðborgarbúi þá líst mér vel á að starfsstöðvum slökkviliðsins verði fjölgað og að aðbúnaður og launamál starfsmanna verði sem bestur á hverjum tíma.


mbl.is Slökkvistöðvum fjölgað á höfuðborgarsvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bætur fyrir fúasprek

Hvernig dettur fólki það í  hug að ætlast til að greitt verði fyrir þessi hús af almannafé þegar það er af skornum skammti fyrir. Þetta eru nú með þeim ljótustu húsum í götunni og það myndi sennilega bæta götumyndina mikið ef það kæmi fallegri hús þarna. Annars spyr ég hvar var þetta lið sem berst hvað harðast við að varðveita þessi kofaskrífli þegar stór hluti sögurnar var fargað en þar á ég við þegar bátaflotanum var fargað í grið og erg á brennum landsmanna, ég veit ekki betur en það þögðu allir þessi þunnu hljóði þá.  En nú virðast alli vera að hugsa um hvað krakkarnir í framtíðinni koma til með að hugsa, verða þau ekki bara á kaffihúsum og velta vöngum um hvað er að gerast í 101? Hættum að sóa peningum og tíma í þetta bull og hugsum um bætta götumynd í framtíðinni og verferð allra sem minna mega sín.


mbl.is Einkennileg staða varðandi Laugavegshús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Jóhann S Kristbergsson
Jóhann S Kristbergsson
Jóhann Sævar heiti ég og er skipasmiður að mennt . Síðan í apríl árið 2008 hef ég unnið hjá Brunavörnurm Suðurnesja sem eldvarnarfulltrúi. Ég er giftur Jóhönnu sem er skólaliði í Holtaskóla og við eigum fjögur börn en þau eru Árni nemi í H.Í. í sagnfræði, Sævar sveinn í húsasmíði og starfar hjá Húsbyggingu, og býr í egin íbúð í Njarðvík og unnusta hans heitir Sigrún Barklind stuðningsfulltrúi. Harpa tónlistarmaður (básúna) kennari í Tónlistaskólanum, og hún á unnustu sem heitir Thelma Björk nemi í kynjafræðum hjá H.Í. og yngstur er Kristberg grunnsólanemi.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband