2.6.2007 | 18:13
gaman saman í sumar
Í gærkvöldi fórum við hjónin á sýninguna Laddi 6.tugur í Borgarleikhúsinu og mikið rosalega var þetta nú góð skemmtun en ferðin var farin á vegum starfsmannafélagi Íslenskra Aðalverktaka. Á undan fórum við og fengum okkur samlokur á Café Blue í Kringlunni og þóttum okkur það ágætis tilbreytingu við hversdagsleikin. Ekki hefur veðrið leikið við okkur til útiverka en maður lét sig nú hafa það að fara út að girða í rigningunni og þegar inn var komið var maður bara hress eftir veðurbarningin. Eitthvað finnst manni það skrítið hvað menn eru tilbúnir að gera til að ná völdum og hafa hið mannlega að engu eins og það virðist vera að gerast í Eyjum og hefur verið að gerast á Akureyri og svo ekki sé minst á Sandgerði og Vestfirðinna. Þetta framsal á kvóta verður nú að athuga vel og gaumgæfulega svo að byggð í landinu færist ekki á fáa staði, eða er þetta kannski hreppaflutningur dulbúin sem fiskstjónunartæki. Annars ætla ég að hafa það gaman í sumar og láta veðrið ekki trufla mig í því en það getur verið annsiskemmtilegt í rigningu.
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.