5.1.2009 | 13:51
Einkaklúbbar formanna verkalýðsins.
Alveg er það með ólíkindum hvernig hægt er að búa til blokk um menn þannig að hinn almenni félagsmaður kemst ekki að. Hvernig væri að breyta þessu þannig að hægt er að kjósa einstaklinga en ekki heilu samstæðuna. Þessir menn eru síðan á ofurlaunum, troða sér síðan í nafni félagsins inn í hinar ýmsu stofnarnir og eru sjálfskipaðir í lífeyrissjóði og þar virðist ekki vera skoið við nögl í launamálum en þessir sjóðir eru hvað mest lokaðir hvað varðar að hinn almenni félagsmaður geti haft áhrif. Svo eiga þessir menn að gæta okkar hagsmuna og hvað hafa þeir gert í þessu ástandi sem nú er, afskaplega finnst mér það rýrt enda ekki nema von þeir eru á það fínum launum að það borgar sig ekkert að vera að rugga skútunni. Nei Gunnar sýndu nú sóma þinn og segðu af þér.
Kosið um tvö framboð á aðalfundi VR | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.